u can stick sol campbell up your arse

only god can judge me

20.10.2006 12:11:40 / Einar

Helgi

Já nú er aftur komin helgi, Þessar vikur líða hratt, og helgarfríin eru komin áður en maður veit af. Á hverjum föstudegi velltir maður sér uppúr sömu spurningunni, hvað á maður að gera um helgina? Maður talar við fólkið í kringum sig og fær að vita hvað hefur í huga. Ég reyni að finna hvað sé að gerast sem ég hef áhuga á. Niðurstaðan er nú samt oftast sú sama. Ég enda á að gera sama og ég gerði síðustu helgi. Ég fer út að skemmta mér allavega eitt kvöld um helgina, horfi á allavega einn fótbolltaleik, horfi á allavega eitt þvínkuvídeo.

Nei ég ætla ekki að breyta til þessa helgi enda engin þörf á því. afhverju? það er gaman að fara skemmta sér, gaman að horfa á fótbollta og gaman að slappa af yfir vídeo.

 En hvað ætlið þið að gera um helgina? Er eitthvað skemmtilegt á döfinni hjá ykkur? 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 14:29:44 / Einar

Le Klub

Á föstudagskvöldi var haldið af stað á Le Klub sem er djassbúlla í miðri Moskvu. Ég gekk í rigningunni á Cernyoxskia metró stöðina og tók brúnu lestina austur á Tetroxskia. Þaðan var fimm mínótna spölur á klúbbinn. Ég hafði fengið símtal frá sendiráðinu deginum áður þar sem mér var boðið að koma á tónleikanna þau voru að reyna fá sem flesta íslendinga til að mæta. Þeir sem áttu að spila voru Tómar R Einarsson og djassbandið hans. Þegar ég gekk inní klúbbin sem var á annari hæð og ég leit í kringum mig sá ég hversu flottur staður þetta var. Ég settist niður á frátekið borð sem var í fremstu röð og tók að tala við íslendinganna. Þarna voru þrú borð full af íslendingum og öðrum sem unnu t.d í sendiráði rússa heima. Ég var rétt búin að fá eina öl kollu og eitt Rússkí Standar vodka staup þegar tónleikarnir hófust. Þarna var komin saman Tómas og rjóminn af bestu íslensku djassleikurum. Bandið samanstóð af Ómari Guðjónssyni á gítar og bróðir hans Óskar á saxafón. Samúel J Samúelsson í Jagúar á básúnu og Einar Scheving á trommur. Bandið spilaði mikið af latin djazz frá Kúbu plötu Tómasar en tóku einnig önnur lög eftir hann í bland. Klúbburinn var þétt setinn af fólki sem kunnu vel að meta Íslensku tónlistarmennina. Í hverju lagi fóru menn hamförum á sviðinu og Ómar, Óskar, Samúel og Einar tóku nánast alltaf sóló í hverju lagi á meðan Tómas héllt taktinum. Spilagleðin og innlifuninn sem maður upplifði var engu lík. Þeir voru klappaðir upp 2 sinnnum, en í dag hefur ekkert annað komist fyrir í hausnum á mér en brot af lögunum sem spiluð voru og öðrum mynningum frá tónleikunum. Þannig að ég gef þessum tónleikum 5 stjörnur af 5 möguleikum. Annað skemmtilegt sem kom úr þessum tónleikum er að bráðum verður stofnað íslendingafélag hér í Moskvu. Ég var beðin um að vera með og auðvita tók ég vel í það. Þannig að eftir nokkrar vikur verð ég einn af stofnmeðlimum Íslendingafélagsins hér í Moskvu sem verður stórt og krefjandi verkefni. Með kveðju úr austri Einar.

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 10:55:41 / Einar

Dúman

Já það er ekki allt vitlaust sem gerist hér í Rússlandi en ég ætla láta ykkur dæma um þetta. Um daginn var í umræðu á Rússneska þinginu eða Dúmunni  um spilavíti. Fjallað var um hvað þau séu að valda miklum erfileikum. Fólk er að fara á hausinn og Þetta er orðið mikið vandamál hérna í landinu. Bara sama umræða og á Íslandi. Fyrir þá sem vita það ekki eru spilavítin aðal peningarþvættismaskínan fyrir Rússnesku Mafíuna. Þannig að það er kannski ekki auðvellt að eiga við þetta mál.

Eftir að hafa fjallað um þetta mál í einhvern tíma komu fram tvær tillögur. Sú fyrri var að nú ætti að setja lög og loka spilavítunum. Þannig væri búið að laga vandamálið. Þessi tillaga var fljótlega tekin úr umferð, enda margir inná þinginu sem fá tekjur frá spilavítunum. Þannig að hin tillagan hljóðaði einhverneigin svona: 

,, Þingið á að ráða leikara til að fara inní spilavítin. Þau skulu vera í skítugum og rifnum fötum. Þegar inn í spilavtín er komið eiga þau að labba að þeim sem eru að spila og tala við þau. Þau eiga að fara með línur eins og einu sinni var ég ríkur viðskiptamaður en sjáðu mig núna eða ég átti stóra fjölskyldu en ég spilaði hana frá mér."

Þetta auðvita samþykkti Þingið enda ekki alltaf sem menn koma með svona snildarhugmyndir. Já það er ekki allt vitlaust hérna í Rússlandi eða? 


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 20:47:48 / Einar

Superbit

Það er misjafnt hvað fólk sannkar að sér. Sumir eiga mikið af geisladiskum aðrir hafa sannkað að sér frímerkjum. Ég þekki menn sem eiga tilkomumikil og stór söfn af DVD myndum. Sumir myndu kalla þá fíkla aðrir menn með áhugamál. Þetta kostar tíma og peninga. Sérstaklega þegar menn eru orðnir miklir spekúlanntar á þessu sviði.

Superbit eru rippaðir DVD sem hafa þann eiginleika að hægt er að horfa á lýka með ensku tali. Aðrir DVD eru aðeins með Rússnesku tali. Auðita er hægt að kaupa upprunalega DVD en þeir eru bara dýrari heldur en heima. Superbit diskarnir sem eru seldir í bílförmum frá yfirgefinn verksmiðju við höfnina í Vladistokk eru ódýrir. Þeir kosta um 100-150 rúblur (300-450kr). Maður getur ekki alltaf verið heppinn eins og ég hef fengið að kynnast. Síðustu 20 mínóturnar af Transsporter 2 spilast ekki, tók mig 30 mínótur til að sjá síðustu mínótur af myndinni mister and misses Smith, Ice age 2 er bara hægt að horfa á rússnesku og Benchwarmers vill ekki spilast í tölvunni. Þrátt fyrir þetta held ég áfram að kaupa þá enda alltaf gott að geta gripið í mynd við tækifæri. Ég held að þegar ég kem aftur til Íslands næsta sumar eigi ég eftir að eiga helljarinnar safn sem þarf að senda með gám svo stórt verður það orðið.

Þannig að maður kémur kannski með að fara á DVDA (DVD anonimus) fund þegar ég kem heim. Ef einhverjir aðrir hafa áhuga á að kíkja með mér er þeim velkomið að slást í för.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 09:12:13 / Einar

Skemmtilegar tilviljanir

Pavlov er strákur sem býr hérna á vistinni og er frá Búlgaríu. Hann ólst upp í litlu fjallaþorpi við ánna Olgu þangað til að hann varð unglingur. Ég hef nokkrum sinnum telft við hann skák og get ekki unnið hann með nokkru móti. Einu sinni var hann búin að sjússa heilan pela af vodka en það dugði ekki. Þegar við fórum að tala saman yfir leik Man Utd í Meistaradeildinni um daginn kom dálítið skemmtilegt í ljós. Hann kláraði mastersgráðu í viðskiptafræði í Háskólanum í Sófiu fyrir nokkru síðan. Mastersritgerð hans var um leikmannakaup knattspyrnufélaga hún þótti svo góð að hann fékk lærlingsstöðu hjá Seska Sófia.

John Hargraeves heitir maður enskur að uppruna og spilaði eina tíð með Liverpool. Hann hefur unnið við knattspyrnu eftir að ferill hans lauk og þekkir flesta sem skipta máli í enskum fótbolta. Þessi maður giftist Búlgarskri konu og fluttist með henni til Búlgaríu eftir að hafa verið boðin stjórnunarstaða hjá Sesku Sófíu. Hann átti að reyna umturna verklaginu hjá klúbbnum og koma honum til betri vegar.

Pavlov vann með þessum manni í mánuð í Sófíu og komst í nokkur náin kynni við hann. Þegar lærlingstöðu Pavlovs var að ljúka fór hann á tal við John hann spurði hvort það væri einhver möguleiki fyrir hann að redda sér starfi hjá Spurs þar sem það væri klúbburinn sem hann hafði stutt frá æsku og draumur hans var að fara þangað. Svo skéði það síðasta desember að Pavlov eyddi 2 vikum sem lærlingur hjá Tottenham. Hann ásamt stjórninni borðaði hádegismat ásamt leikmönnum allann þennan tíma og hann komst í kynni við leikmenn, þjálfara og starfslið í kringum liðið. Við spjölluðum heillengi um dvöl hans hjá liðinu og framtíð liðsins en ég ætla ekki að fara nánar í það hér. Þannig að óvænntir og skemmtilegar tilviljanir geta alltaf verið á næsta horni sjá bara Pavlov, verið því tilbúin að taka því sem kémur. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 18:14:11 / Einar

Niðurgangur á 4 degi

Já nú ætla ég að deila með ykkur reynslu minni þessa síðstu daga. Við skulum byrja frá byrjun

Á miðvikudaginn vaknaði ég frá værum blundi um hádegisbilið. Það beið mín stór dagur sem ég vildi byrja með góðum morgunverði. Ég ákvað því að búa til ommilettu með pulsum. Ég greip pulsupakkann sem ég hafði keypt í supermarkaðnum en þegar ég greip í egginn voru þau föst. Ég tosaði og loksins losnuðu helvítis eggin en þegar ég leit á þau voru þau frosin í stórum klump. Ég tók því á þá ráð að fá mér steiktar pulsur með tómatsósu í hádeginu. Eftir að hafa eldað, borðað og þrifið eftir mig labbaði ég á klóstið. Ekki lesa áfram ef þú hefur viðkvæma sál. Ég fór beint inná klóstið og byrjaði að pissa með hinu gatinu. Ég ætlaði ekki að trúa þessu hvað var í þessum pulsum? Restin af deginum var eitt inn í herberginu mínu 3 metra frá klóstinnu ef eitthvað færi úrskeðis. Ég gat ekki prumpað án þess að setjast á klóstið því allt gat gerst og þannig var dagurinn.

Fimmtudagur ég vaknaði og hugsaði með mér ,, jæja vonandi er þetta orðið gott". Ég gat ekki skjátlast meir en þegar dagurinn leið fór þetta batnandi. Svo vel leið mér um kvöldið að ég fékk mér bjór með fólkinu um kvöldið hérna í obsesítsje (vistinni).

Föstudag og eins og einhver sagði Flöskudagur. Um kvöldið yrði farið að skemmta sér enda ætti ég það skylið eftir erfiða viku. Ég settist á klóstið í hádeginu og leit niður hver yrði útkoman. Hérna í Rússlandi eða á obsesítsje kúkaru á syllu áður en þú sturtar niður örlítið gat. Komu ekki þessu fínu lambaspörð eins og maður sér í sveitinni fyrir norðan þegar maður er í berjamó í ágúst. Ohh þetta er búið að ég héllt. Á öðrum bjór í brjáluðu partý fann ég að ekki var allt í lagi. Ég hugsaði með mér getur þetta verið að ské? Ég þurfti ekki að hugsa lengi þar sem ég þaut á klóstið og vissi hvers var að vænnta. niðurgangur á 3 degi, nei og kvöldið hafði byrjað svo vel. Ég reyndi allt sem ég gat en ég varð að vera heima. Á klúbb í Moskvu er 20 mínótna bið á klóstið og ég gat ekki tekið sénsinn. Þessvegna drekka allir vodka úti á lífinu því þú nennir ekki að fara alltaf á klóstið.

Laugardagur byrjar eins, þar sem ég hef verið að drekka síðustu 2 daga og núna líður mér ekki vel. Rassinn á mér er eins og Hirosima árið 1945. Ílla brunnin eftir að hafa skeint mér með fínasta Rússneska klósettpappir í fjóra daga. Ég læt samt ekki deigan síga. Fór í spilvítið mitt í dag til að horfa á Tottenham spila eins og ég geri stundum og er orðin þekktur þar sem útlendingurinn sem kémur á spilavítið aðeins til að horfa á smá bolta en er síðan farinn án þess að hafa spilað neitt. En þegar ég skrifa þetta er ég á því að fara út og ætla mér. Læt ekki þessa helgi fara til spillis vegna nokkurra pulsu á miðvikudaginn. Jæja ætla klæða mig og leggja af stað en það sem ég og þið vænntanlega eruð að vellta fyrir ykkur, hvernig endar þetta eiginlega? því ég kemst ekki aftur á obsesítsje fyrr en 6 um morgununinn.

Jæja farið með faðirvorið fyrir mig og óskið mér góðs gengis.

p.s kíkið á bloggið hans Leó Snær hann er komin aftur með sögurnar sínu frægu.

kv úr austri Einar Örn


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 11:33:44 / Einar

Lengra Sumar

Þar sem sumarin eru stutt á íslandi er ánægjulegt að vera hérna í Moskvu. Frá því að ég koma hingað hefur hitin venjulega verið milli 15-22 stiga hita. Hann hefur mesta dottið niður í 10 gráður sem er nú ekki það kalt. Ég held að ég væri alveg tilbúin að skipta á Íslandi og fá aðeins kaldari vetur og lengri og heitari sumur. Eins og hér verður jú kaldur og snjómikill vetur en á móti kémur varir hann í 4-5 mánuði. En September og hálfur oktober kémur til með að vera ágætur. Þannig að með því að vera hér er maður búin að lengja sumarið um 1 og hálfan mánuð og ekki veitir af eftir leiðinlegt sumar heima.

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 17:30:25 / Einar

Ömmurnar

Já það er margt sem maður sér þegar maður er komin í stórborg eins og Moskvu. Eitt af því sem ég tók eftir eru þessar gömlu konur betlandi pening út um allt. Þær eru oft í rifnum, blettóttum og gömlum fötum. Hvert sem þú ferð rekstu á þessar konur með hendina úti, jafnvel með miða sem á stendur eitthvað sem ég skyl ekki. Þegar ég spurðist fyrir um þessar konur þá fékk ég þetta svar. ,, Þar sem alkahólismi er svo mikil í Rússlandi deyja margir karlar langt fyrir aldur fram. Mennirnir eru oft þeir sem hala inn tekjurnar og sérstaklega hjá eldra fólki. Þegar þeir deyja koma nánast engar tekjur inn á heimilinn. Bæturnar frá ríkinu duga ekki fyrir leigunni þannig að margar konur taka uppá það ráð að fara á göturnar og setja fram lófanna." Þótt gamla fólkið heima hafi það nú ekki oft gott og tala um það í gríð og erg. Þá fór ég nú að vellta fyrir mér að ef maður væri nú fæddur hérna eða annarstaðar þar sem ástandið er svipað þá gætu þessar konur verið ömmurnar mínar. Jú það eru víst ömmur allstaðar.

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 12:20:58 / Einar

Skúrkar og skítmenni

Hér í Rússlandi getur allt gerst. Ég ætla að deila með ykkur tvær sögur sem áttu sér stað um helgina og gefa góða mynd af því sem getur átt sér stað.

 

 



Thomas herbergisfélagi minn og Martinn voru staddir á Metróstöðinni Polianka á laugardagsmorguninn eftir djamm. Thomas er frakki og eins og allir frakkar reykir hann. Thomas kveikti sér í sígarettu í rólegheitum á stöðinni en um leið og hann var búin að taka nokkra smóka öskraði lögreglumaður að honum. Thomas skylur svo sem ekki neitt í rússnesku en nóg til að átta sig á hvað löggan vildi. Hann drap í sígarettunni og þeir rölltu með löggunni í herbergi á stöðinni. Löggan sýndi Thomas klefa með rimlum og hótaði að setja hann inn ef hann fengi ekki 500 rúblur (1500kr). Löggan sagði þeim að viðurlög við að reykja í Metró væru um 8000 rúblur (24.000kr) eða það sagði hann allavega. Thomas og Martin reyndu að segja við hann og sína að þeir ættu engan pening. Þetta gerði lögreglumanninn bara reiðari þannig að Thomas skellti 100 rúblum (300kr) á borðið sem á endanum var nóg. Löggan hér í Rússlandi er nefnilega oft tilbúin að gera líf þitt aðeins erfiðara til þess að fá smá pening.

 

 



Seinni sagan er öllu alvarlegri en hún skéði fyrir Daníel félaga minn frá Noregi. Ég, Daníel og fleirri fórum á næturklúbb hér í Moskvu sem heitir Fabrik. Þegar leið á nóttina fór Daníel á tal við þrjár föngulegar stúlkur. Hann spjallaði við þær í nokkurn tíma og virtist vera heilla þær uppúr skónnum. Þær spurðu hann hvort hann vildi ekki kíkja með sér á annan stað sem væri opin aðeins lengur. Hann vildi auðvita ekki skylja við þessar fallegu stelpur þannig að hann skellti sér með. Þegar þau voru lögð af stað í leigubílnum létu þær hann vita að það væri aðgangseyrir og hann þyrfti að borga inn fyrir þær. Hann sagðist ekki ætla borga fyrir þær allar en vildi borga fyrir eina eða þá stelpu sem hann var að reyna við. Þær létu hann vita að þær voru hórur og hann þyrfti að borga fyrir þær inn og ef hann vildi kynlíf eftir á myndi það kosta. Þetta var mikið sjokk fyrir Daníel og sjálfstraustið féll enda héllt hann að norsku trikkin sem hann flutti inn til Rússlands með sjálfum sér höfðu verið að virka. Hann varð reiður og reyndi að fá leigubílstjórann til að stoppa bílinn en hann vildi ekkert hlusta á Daníel. Þær létu hann vita að ef hann vildi ekki borga þeim færu þær með hann til melludólgs þeirra og hann myndi ganga frá málunum.  Hann reyndi því að biðla til mannlega eðlis hóranna og setti upp hvolpa svip sinn í leiðinni. Hann sagði við þær að hann hafi ekki vitað að þær væru hórur og röflaði eitthvað meira. Á endanum virkaði þetta því hórurnar fóru að vorkenna honum. Þær skutluðu honum heim en það kostaði. Hann þurfti að borga þeim 1000 rúblur (3000kr) til að fá að losna og leigubílstjóranum 200 rúblur (600kr). Daníel var sáttur með hvernig þetta endaði enda hafði þetta getað endað á verri veg. Ef þessar sögur hafa kennt mér eitthvað þá er það að maður er ekki lengur í vernduðu umhverfi Íslands. Maður er komin í stórborg þar sem hætturnar leinast á hverju horni og maður verður að passa sig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 14:26:56 / Einar

MockBa

Ja nu er eg staddur i Moskvu hofudborg Russlands. Borgin er lifid her er ad morgu leyti olikt islandi en hun er tho vestraenni en eg hellt. stormarkadir, kaffihus, naeturklubbar og margt annad er eins og a islandi. Verdlag her er meira en eg hafdi gert mer vonir um. hotel, midar i gym og veitingarhus eru jafndyr og heima. Moskva er dyrsta borg i heimi og thad er engin lygi. Thegar u ferd i bud kaupir thu hinsvegar sigarettur a 100kr eda minna og halfsliterbjor a um 80kr. En thad er dyrt ad skemmta ser midadvid ad thetta er Russland. Bjor a stodum kostar 200kr og uppur , thannig ad odyrast er ad skella i sig vodkastaup fyrir 300kr thvi staup her er eins og 2faldur heima. Stelpurnar her eru rosalega flottar, thaer klaeda sig eins og druslur sem er tiska sem eg vill ad breidist ut a islandi. Haegt er ad lysa ollu en thessi borg er bara eitthvad sem allir sem vilja eiga ad upplifa med sinum eigin augum. Magni er ekki enn buin ad finna pobb sem synir fotbolta en eg er buin ad spyrjast fyrir og aetla kikja vonandi a einn i kvold. hafid thad gott og afram island i kvold.

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 10:06:30 / Einar

millilending

Sælt veri fólkið, vegna þess að báðir pistlahöfundar þessarar síðu eru utanlands hefur ekkert verið að gerast. Magnadona er staddur á Sunny Beach í Búlgaríu í afslöppun og til að kynna sér heimkynni framherja Tottenham Dimitar Berbatov. Magna tókst að fara í gamla heimabæ hans og bankaði uppá hjá ömmu hans. Hann fór með hana út að borða með túlk og spjöllu þau um Berbatov langt fram á nótt. Amma hans kunni vel að meta uppátækið og er magni komin með boðskort í mat til Berbatov ef hann á leið til london.

Eg er hinsvegar staddur í Kaupmannahöfn í afslöpppun. Ég fer síðan á miðvikudaginn austur til Moskvu til að hefja nám og nýja knattspyrnuferilinn. Ég kem til að nema Rússnesku í hinum virta Plekhanov Háskóla í eitt ár. Þar fara ættir eins og Smirnoff í háskola, enda Plekhanov fyrsti einkarekni haskóli Russlands. Ég kem afram til með að koma með pistla um daglegt lif í Moskvu og önnur mál en þangað til sæl að sinni


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 00:15:00 / Einar

Barcelona

Ég horfði á leik Barcelona á móti Espanlol í kvöld. Fyrsti titill leiktíðarinnar vannst í  þrjú núll sigri en samanlagt fjögur núll. Eiður Smári og Thuram léku sinn fyrsta leik en þeir komu inná í seinni hálfleik. Miðað við leikin þá á Eiður enn nokkuð í land með að komast inn í spil Barcelona. Hann átti ekkert slæman leik en hann var ekki mikið inní spilinu. Þeir voru rólegri í seinni hálfleik enda komnir samanlagt þremur mörkum yfir. Hann átti nokkur hlaup og gerði sig frían en fékk þá ekki bolltan. Þegar átti að gefa á hann tók hann hlaup í vitlausa átt. Thuram hinsvegar átti frábæran leik. Hann ásamt Puyol áttu ekki í vandræðum með að leisa varnarvinnuna. En eitt er víst að Barcelona er lið sem er til alls líklegt með leikmenn eins og Ronaldinho, Messi og fleirri snillingum innanborðs. Þannig að gaman verður að horfa á leiki með þeim í vetur sérstaklega ef okkar maður Eiður nær að stimpla sig inní liðið. endilega komið með comment ef þið sáuð leikin eða hafið einvherja skoðun á spænska bolltanum. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 13:43:54 / Einar

A cat in the swamp put on a steering wheell and now goes out the fairy-tale.

Já draumurinn um frægð er úti. Eftir að Grótta sigraði KFS í gær eru vonir manna farnar út um gluggann. Búið var að panta 3 flugvélar frá Írlandi sem áttu að ferja stuðningsmenn beint til Keflavíkur fyrir leik Víðis og KFS. En eftir leikin í gær fóru vélarnar með matvæli til Angola fyrir UNISEF. Fyrir þá sem hafa enn áhuga á að fara leikin er bennt á að Herjólfur fer tvær ferðir á laugardaginn.

Ýmislegt skemmtilegt hefur komið í ljós eftir leikinn og ber þetta hæst:

Slúðurpakki dagsins:

Eftir leik rétti Magnadona framherji KFS Hjalta þjálfara fluttningsbeðni. Sögur herma að tilboð Gunna Oddsonar í Magnadona hafi verið of freistandi til að hafna. Í samninginum eru hlutir eins og 90 mínótur gegn IBV á næstu leiktíð og 2 ferðir til Spánar. Einnig segir sagan að Magnadona var ekki ánægður þegar hann var settur inná eftir 20 mínótna leik en tekin útaf í hálfleik. Hjalti sagði ástæðuna vera að dómarinn Július væri búin að eyrnamerkja Magnadona sem leikmann í sama flokki og Keane, Vinni Jones og Pál Hjarðar.

Einar aka ,, Murphy” er búin að skrifa undir hjá Sparta Oleg sem er staðsett í austurhluta Moskvu. Í samningi hans var meðalannars samið um að hann verði að safna yfirvaraskeggi en fær 1 kassa af vodka á mánuði og VIP miða á heitasta stipp/mellubúllu borgarinnar.

Unnar Hólm er talin vilja spila með liði í bænum, Óttar Jóns vill fá meira krefjandi verkefni og leika í 2 eða 1 deild.

KFS er búið að sækja liðstyrk fyrir næsta tímabil út fyrir landsteina og fá fyrrverandi Rúmenska landsliðsmanninn Hagi. Hann hefur samið að leika 10 fyrstu leikina en fer heim fyrir osta og smjör hátíðina sem er haldin árlega í heimabæ hans.


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 22:21:46 / Einar

3 deildin

 

Eftir síðustu helgi hefur verið blásið nýju lífi í A riðil 3 deildarinnar í knattspyrnu. Ekki er langt síðan þétti bakvörður Víðismanna þessi sem er alltaf með neftóbak milli nef og munns talaði niður til hins eitraða framherja Framherja Magnadona. Hann talaði um að eina liðið sem gæti eitthvað og myndi gera eitthvað í sumar væri Víðir. Síðan þá hefur mikið af Laxi borist á bakka Íslands og gengi Víðis dalað á meðan Framherjar hafa vaxið ásmegin. Síðasti leikur Framherja lyktaði með 10-0 sigri á útivelli gegn Afríku utd. Magnadona var með þrennu í leiknum og færist hratt upp töfluna yfir markahæðstu leikmenn riðilsins. Eftir að leikurinn hafði staðið lengi í 6-0 hleypti Einar aka ,,  Murphy” eins og hann er kallaður af liðsfélögum sínum  nýju lífi í sóknarleikinn. Síðustu 20 mínóturnar fór leikurinn í einstefnu og skoruðu Framherjar 4 mörk.

 

Nú þegar aðeins 2 umferðir eru eftir eiga Framherjar leik gegn Gróttu sem eru öruggir áfram og gætu því sent hálft lið til eyja. Ef Víðismenn ná ekki að knýja sigur í næsta leik gegn GG er um hreinan úrslitarleik að ræða milli Víðis og Framherja. Verður því gaman að sjá hvort að þétti bakvörður Víðis þurfi að kyngja orðum sínum með smá dögg af neftóbaki eftir nokkrar vikur. Þangað til verið þið sæl að sinni.



 



 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 12:16:28 / Einar

Hm í knattspyrnu

Þegar það er farið að kosta mann 13 þúsund að fá sýn til að horfa á fótbolta í einn mánuð þá hugsar maður sig tvisvar um. Það eru þrír leikir á dag frá eitt til níu á kvöldin. Allt gott og blessað við það en ég eins og margir aðrir þurfa vinna. Éf ég væri atvinnulaus væri þetta fínt ég myndi bara eyða bótunum mínum í Sýn en lífið er bara ekki svo gott.

Er það lýka þess virði að horfa á þjóðir eins og Íran, Togo og fleirri. Þessi fyrstu stig keppninar heilla ekki eins mikið. Leikirnir eru misspennandi og góðir. Það er ekki fyrr en maður fær að sjá 16 liða úrslitin sem maður hefur virkilega gaman af keppninni. Auðvita er samt alltaf gaman að horfa lið eins og Braselíu, England, Ítalíu og auðvita mina menn Svía og má lengi telja. En fyrir 13 þús vil ég frekar velja þá leiki um helgar og á kvöldin sem mér finnst skemmtilegir og langar að horfa á. Fara annaðhvort á pöbb eða til einhvers sem maður þekkir sem sparaði í einhvern tíma til að eiga efni á þessu. 

 

En fyrir næsta EM og HM í knattspyrnu ætla ég að halda kröfugöngu í Reykjarvík til þess að láta Ríkissjónvarpið sýna alla keppnina. Til þess að trufla ekki sjónvarpsútsendingar gamla fólksins verður stofnðu hliðarstöð, HM stöð yfir keppnina frí fyrir alla landsmenn.  


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2